Sameiginlegur vefur félaga tengdum Hornströndum Fréttir · Félagsmál · Upplýsingar fyrir landeigendur

Saga & byggðir

Sléttuhreppur

Sléttuhreppur var hreppur á Hornströndum í Norður-Ísafjarðarsýslu. Hann fór í eyði 1953 og var sameinaður Ísafjarðarkaupstað 19. desember 1995.

Sléttuhreppur afmarkaðist af úthafinu að norðan og vestan. Að sunnan eru Ísafjarðardjúp og Jökulfirðir. Á landi liggja hreppsmörkin frá Lás, eftir nesinu milli Hesteyrarfjarðar og Veiðileysufjarðar að fjallgarði sem skilur að Jökulfirði og Hornstrandir og eftir þeim fjallgarði austur í Breiðaskarðahnúk. Þaðan liggja mörkin norður fyrir Látravík. Áður fyrr mun Látravík hafa verið hluti af Sléttuhreppi, en eftir að hún byggðist var hún talin innan Grunnavíkurhrepps