Sameiginlegur vefur félaga tengdum Hornströndum Fréttir · Félagsmál · Upplýsingar fyrir landeigendur

Viðburðir

Þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík

– · Salur Þróttara í Laugardalnum

Kæru Sléttuhreppingar 

Hið árlega þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps verður haldið laugardaginn 5. febrúar 2011 í sal Þróttara í Laugardal
.
Verð er það sama og í fyrra eða kr. 5.000 á manninn.
Húsið verður opnað kl. 19:00 með fordrykk og borðhald hefst kl. 20:00. Veislustjóri er Ólöf S. Björnsdóttir. Yrsa Sigurðardóttir, rithöfundur, verður ræðumaður kvöldsins. Jón Bjarnason skemmtistjóri sér um tónlistina.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til stjórnar í tölvupósti eða síma í síðasta lagi miðvikudaginn 2. febrúar.
                
Vinsamlegast greiðið með reiðufé eða hafið kvittun úr heimabanka 0116-26-003591, kt. 480182-0149 

Húsið opnað kl 19:00 með fordrykk
Borðahald hefst c.a. kl 20-20:15
Formaður býður gesti velkomna og setur þorrablótið
Veislustjóri Ólöf S. Björnsdóttir tekur við
Matur
Sungið úr söngheftum
Ræðumaður kvöldsins Yrsa Sigurðardóttir
Minni karla Elínborg Sigurðardóttir, sungið á eftir Táp og fjör og frískir menn
Minni kvenna Hafsteinn Hafsteinsson, sungið á eftir Fósturlandsins Freyja
Söngatriði Hanna Björk Guðjónsdóttir
Happadrætti
Sungið meira úr söngheftum
Dans undir stjórn Jóns Bjarnasonar skemmtanastjóra


Stjórnin hvetur fólk til að fjölmenna og taka með sér gesti.

Stjórn Átthagafélagsins 2011