Sameiginlegur vefur félaga tengdum Hornströndum Fréttir · Félagsmál · Upplýsingar fyrir landeigendur

Viðburðir

Messa og kirkjukaffi í Áskirkju sunnudaginn 30. október

–

Hin árlega messa Átthagafélagsins í Reykjavík verður í Áskirkju sunnudaginn 30. október n.k. kl. 13:00 og kaffi í safnaðarheimilinu á eftir. Þar ætlum við að eiga notalega stund saman í kirkjunni og í safnaðarheimilinu á eftir messu.

Ræðumaður verður Oddur Hermannsson frá Sæbóli í Aðalvík.

Prestur verður séra Helga Kolbeinsdóttir.

Fjölmennum og tökum með okkur gesti. Vinsamlegast látið þetta fréttast meðal félagsmanna og ættingja.

Kaffið kostar 2.000 kr. á mann. Vinsamlegast greiðið með reiðufé eða hafið kvittun úr heimabanka 0116-26-003591, kt. 480182-0149.