Sameiginlegur vefur félaga tengdum Hornströndum Fréttir · Félagsmál · Upplýsingar fyrir landeigendur

Viðburðir

Fundur stjórnar LSG með félagsmönnum fyrir vestan

–

Landeigendafélag Sléttu- og Grunnavíkurhrepps heldur fund fyrir félagsmenn í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði 28. apríl kl. 20:00.
 
Nýir félagsmenn eru boðnir velkomnir. Í lögum félagsins segir:
„Félagsmenn geta þeir orðið, sem eiga réttindi yfir fasteignum í fyrrum Sléttu- og Grunnavíkurhreppi, það er jörðum, einstökum lóðum og húsum.“
 
Stjórn félagsins mun kynna félagið og Hornstrandanefnd.
 
Gestur fundarins verður Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.