Sameiginlegur vefur félaga tengdum Hornströndum Fréttir · Félagsmál · Upplýsingar fyrir landeigendur

Viðburðir

Aðventufagnaður Grunnvíkinga

–

Aðventufagnaður verður í Kiwanishúsinu Sigurðarbúð fyrsta sunnudag í aðventu, 2. desember kl. 15:00.

Aðventufagnaðurinn er  fjölskylduskemmtun með aðaláherslu á börnin. Með aðventufagnaðinum hefjum við  undirbúning jólanna, föndrum, spjöllum, syngjum og spilum bingó, um leið og við  röðum í okkur smákökum ásamt tilheyrandi drykkjum. Við hvetjum fólk til að koma í Sigurðarbúð þennan dag þó það sé barnlaust, flétta sér eina körfu eða  músastiga og upplifa stemminguna. Áberandi var á síðasta aðventudegi hve yngra  fólkið var duglegt að koma og væntum við þess líka í ár