Sameiginlegur vefur félaga tengdum Hornströndum Fréttir · Félagsmál · Upplýsingar fyrir landeigendur

Eigendur smáhýsa að Látrum í Aðalvík

Ísafjarðarbær kallar eftir því að þeir sem gera tilkall til smáhýsa sem nýlega voru reist að Látrum í Aðalvík gefi sig fram við Ísafjarðarbæ 1. september nk. og geri grein fyrir framkvæmdunum. Eftir þann tíma áskilur sveitarfélagið sér rétt til aðgerða.

Landeigendafélagið

Í sameiginlegri bókun skipulags- og mannvirkjanefndar og umhverfis- og framkvæmdanefndar segir: „Nefndin áréttar að samkvæmt aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar og friðlýsingu Hornstranda eru allar framkvæmdir og mannvirkjagerð bönnuð í friðlandinu nema með samþykki Ísafjarðarbæjar og Umhverfisstofnunar. Nefndin kallar eftir því að þeir sem gera tilkall til smáhýsanna í fjörunni að Látrum í Aðalvík gefi sig fram við Ísafjarðarbæ fyrir 1. september 2015 og geri grein fyrir framkvæmdunum, eftir þann tíma áskilur Ísafjarðarbær sér rétt til aðgerða.“​